Internet Ráðgjöf

Reynslan sýnir að það skiptir máli hvernig vefir eru unnir. Ráðgjafar Nordic eMarketing hafa víðtæka menntun og reynslu í markaðssetningu á Internetinu.

Innan fyrirtækisins er yfirgripsmikil tækniþekking og mikil reynsla í markaðsmálum sem nýtist vel þegar kemur að hönnun vefja og árangursríkri

markaðssetningu á Netinu. 

 Meira

Internet Markaðssetning

Til að ná árangri er mikilvægt að fyrirtæki hafi unnið góða grunnvinnu og metið vel hvaða leiðir eru mögulegar í markaðssetningu á Netinu. Umfram allt hvaða leiðir eru líklegastar til árangurs. Nordic eMarketing leggur áherslu á markaðssetningu á Internetinu í víðu samhengi.

 Meira

Vefumsjónarkerfi

Gott vefumsjónarkerfi er eitt það mikilvægasta þegar kemur að því að byggja upp góðan vef eða vefi en vefumsjónarkerfi eru mis leitarvéla- og notendavæn. Það sem þarf að hafa í huga við markaðssetningu á Internetinu að heimasíður eru hannaðar fyrir notandann en ekki síður fyrir leitarvélarnar svo að síðan finnist á helstu leitarvélunum. 

 Meira

Vefgreining og viðmótshönnun

Að greina samkeppnisaðstæður og markhópa ásamt því að ógnanir og tækifæri eru skilgreind er gríðarlega mikilvægt. Vefgreining og rétt viðmótshönnun með skilgreinda markhópa í huga er grundvöllur árangursríkrar notkunar vefsins. Með því að þekkja viðskiptavini sína má finna leiðir til þess að ná forskoti á samkeppnisaðila skilgreina stefnu og setja markmið   Meira

Fréttir og pistlar


1. apríl 2012

Bókin Global Search Engine Marketing fær góðar viðtökur

Bókin Global Search Engine Marketing sem Kristján Már Hauksson einn eigenda Nordic eMarketing er meðhöfundur að hefur fengið fínar móttökur og selst ágætlega. Fyrsti bókadómurinn er núna komin og er það David Temple sérfræðingur í Internet Markaðssetningu skrifar þennan dóm á bloggi sínu SEMScholar. Hægt er að lesa dóminn hérna Global Search Engi... meira

29. mars 2012

Nýtt frá Google - "Account Activity" lætur vita hvað Google veit um þig

Google hefur kynnt glænýjan þjónustuþátt, sem sendir notendum mánaðarlegt yfirlit yfir hvað þeir hafa verið að gera þegar þeir hafa verið skráðir inn á einhverja Google þjónustu, svo sem Google Play, Google+, Gmail og Youtube. Meðal annars færðu að vita hve marga pósta þú sendir og tókst á móti, fjölda og tegundir leita sem þú framkvæmdir innskráð... meira

26. mars 2012

Starfsmaður Nordic eMarketing í dómnefnd European Search Awards

Kristjáni Má Haukssyni, einum stofnenda og aðaleiganda Nordic eMarketing, hefur hlotnast sá heiður að vera boðið sæti í dómnefnd Evrópsku markaðsverlaunanna "European Search Awards" sem veitt verða við hátíðlega athöfn í Amsterdam 5. júlí næstkomandi. Hægt er að skila inn tilnefningum til 4. maí næstkomandi og er það frítt. Nánar er hægt að lesa u... meira

8. mars 2012

RIMC mætting klukkan 08:00

RIMC Markaðsráðstefna - Mæting föstudaginn 9. mars milli 08:00 og 08:30 í innskráningu (Hilton Reykjavik) og ráðstefnan hefst klukkan 08:45 með stuttum inngangi frá forseta Íslands. Fyrsti fyrirlesarinn (Eli Pariser) byrjar stundvíslega klukkan 09:00. Dagskrá ráðstefnunnar má finna hérna (hún er á ensku, vinsamlegast hafið samband til að fá frekar... meira

28. febrúar 2012

Nordic eMarketing er orðið vottaður Google samstarfsaðili

Nordic eMarketing hefur stigið skrefið og er nú orðið vottaður samstarfsaðili Google en fyrir er fyrirtækið "Prefered Partner" hjá Yahoo! Web Analytics, vottaður samstarfsaðili Microsoft Advertising auk þess sem Kristján Már Hauksson, ráðgjafi hjá Nordic eMarketing, situr í stjórn ráðgjafa (Advisory board) Microsoft Advertising. "Þetta er mjög... meira

Eldri fréttir

 

Póstlisti Nordic eMarketing

Skráðu þig á póstlista okkar og fáðu upplýsingar um markaðsmál á Internetinu, námskeið og ráðstefnur á okkar vegum ásamt öllum nýjustu fréttum fyrirtækisins