22. september 2009
Sérfræðingur Nordic eMarketing kennir grunnþætti við Internet PR skrif
Fyrirtækið Nordic e-marketing býður félagsmönnum SAF að senda á næstu þremur mánuðum þrjár fréttir sem það setur á alþjóðlegar fréttaveitur eins og fram hefur komið í fréttatilkynningu og á fundi SAF um markaðsmál þ. 4. septmeber sl. Af því tilefni býður fyrirtækið félagsmönnum SAF jafnframt upp á að halda stutt námskeið í slíkum fréttaskrifum þ. 22. september nk. kl. 15-17 hjá SAF í Borgartúni 35 og er námskeiðið er félagsmönnum SAF að kostnaðarlausu.
Til baka