25. nóvember 2009

Bókin Markaðssetning á netinu kemur út

Bókin Markaðssetning á netinu kemur út fyrsta desember, bókin er skrifuð af Kristjáni Má Haukssyni aðaleiganda Nordic eMarketing og Guðmundi Arnari Guðmundssyni vörumerkja- og markaðsstjóra Icelandair. Mikið hefur verið lagt í þessa fyrstu bók um netmarkaðssetningu og margir komið að henni. Meðal annars skrifa í hana Shari Thurow, Dennis Mortensen, Mel Carson og Anne Kennedy auk fjölda annarra gesta penna.

 

Bókin fjallar á íslensku um íslenskan raunveruleika í markaðssetningu á Internetinu.

 

Hægt er að lesa meira á www.online.is

 



Til baka