2. febrúar 2010

RIMC valin á lista bestu ráðstefna sinnar tegundar fyrir árið 2010

Internetmarkaðsráðstefnan Reykjavik Internet Marketing Conference, eða RIMC, verður haldin 12. Mars 2010 í sölum Smárabíós, Smáralind. Ráðstefnan sem í ár var valin ein af topp ráðstefnum heims af netfyrirtækinu Internet World skartar frábæru setti fyrirlesara og er áherslan þetta árið á farsíma og vefverslun.

Meðal fyrirlesara má finna, Allan MacCaskill frá Ericsson, en hann er stýrir nýtæknisviði símarisans Ericsson og mun fjalla um það sem er að gerast í farsímatækni og markaðssetningu í gegnum farsíma. Með Allan verða 12 aðrir fyrirlesarar, þar á meðal kemur Jenny Leahy frá Microsoft, en hún stýrðir breytingu Microsoft frá Live leitarvélinni yfir í Bing, en sú breyting olli því að Google tapaði í fyrsta sinn markaðshlutdeild á leitarvélamarkaðinum.

Af öðrum fyrirlesurum sem verða með erindi á ráðstefnunni má nefna Ashley Friedlein framkvæmdastjóra Econsultancy, Gene Ehrbar framkvæmdastjóri Anomaly Incorporated sem er sérfræðingur í iPhone og iPad hönnun, Matt Sewell Sviðstjóri Digital hjá auglýsingastofunni Hunterlodge, Mike Grehan VP, alþjóðlegur yfirmaður efnistaka hjá Incisive Media sem meðal annars halda úti vefritunum Search Engine Strategies og ClickZ. Frá Íslandi verða Elísabet Grétarsdóttir markaðsstjóri CCP, Kjartan Sverrirsson netmarkaðsstjóri Icelandair, Lee Roy Tipton Digital & Sons og Jens Hilmersson yfirmaður erlendrar viðskiptaþróunar hjá Nordic eMarketing.

Sá fyrirlesari sem mun líklegast vekja mesta athygli er Allan Dick Jr., en hann er markaðsstjóri Vintage Tub and Bath í bandaríkjunum og áhugamaður um pípulagnir. Fyrirtækið sem selur meðal annars notuð baðkör á netinu og er í dag á Bandaríska topp 500 listanum yfir þau fyrirtæki sem selja hvað mest á netinu og er í dag stærsta fyrirtækið í heiminum í sínum geira. Með tilkomu Internetsins jókst sala þeirra um 4000% og er það í dag með viðskiptavini um allan heim. Gríðarlega áhugaverður fyrirlesari sem mun sýna fram á hvað Internetið skiptir miklu máli í viðskiptum og undirstrika að staðsetning verslunar skiptir minna máli en vöruvalið og framsetning.

Samhliða RIMC 2010 rástefnunni verður haldin fagsýningin Netið 2010, sýningin verður yfir alla helgina eða frá 12 til 14. mars og þar munu fyrirtæki og stofnanir sýna nýjustu tækni og þjónustu sem tengist Internetinu. Sýningin Netið 2010 verður einstakt tækifæri fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem vilja kynna þjónustu og starfsemi á internetinu.

Frekari upplýsingar um RIMC 2010 má finna á www.rimc.is eða í síma 540 9500

Upplýsingar um Netið 2010 má finna á www.netid2010.is



Til baka