2. nóvember 2011

Viðtal við starfsmann Nordic eMarketing í netútgáfu Kampanje.no

12. október síðastliðinn birtist viðtal við Kristján Má Hauksson í norska Markaðs- og viðskiptablaðinu Kampanje. Í viðtalinu er rætt um sýnileika Noregs á netinu og hvaða tækifæri landið hefur og jafnframt lítil lönd eins og t.d. Ísland. Norska ríkisstjórnin er nýbúin að útdeila þeim fjármunum sem ferðamálaráð landsins hefur að ráða og hefur skapast mikil umræða um þann árangur sem hefur náðst t.d. í samanburði við Svíþjóð og Danmörku sem aðeins verja helmingnum af því fé sem Noregur gerir.

Með því að smella á fyrirsögn viðtalsins má lesa það í heild sinni "Norge lite synlig på nett"



Til baka