3. nóvember 2011

Nordic eMarketing er eina fyrirtækið á Íslandi með Facebook professional account

Nordic eMarketing er eina netmarkaðsfyrirtækið á íslandi með svokallaðan "Professional Account" hjá Facebook, en svoleiðis reikning fá aðeins fyrirtæki sem vinna með háar upphæðir á Facebook. "Nordic eMarketing hefur verið að keyra mikið af stórum herferðum fyrir alþjóðlega viðskiptavini og hefur því þurft að hafa aðgang að bæði öflugri greiningu á þeim herferðum auk þess að persónulegir Facebook reikingar hafa flestir mjög takmarkað svigrúm í eyðslu á dag sem getur verið hamlandi" Sagði Ólafur Kr. Ólafsson en hann stýrir uppsetningu og umsjón Facebook auglýsinga hjá Nordic eMarketing.



Til baka