8. febrúar 2012

Bók eftir einn starfsmann Nordic eMarketing kemur út í Bandaríkjunum

Kristján Már Hauksson stofnandi Nordic eMarketing og meðhöfundur "Markaðssetning á netinu", fyrstu íslensku bókarinnar um slíka markaðssetningu er meðhöfundur á nýrri bók sem að koma út í Bandaríkjunum um miðjan næsta mánuð. Umfjöllunarefnið er margtyngda markaðssetningu og er fyrsta bókin um það efni sem kemur út í heiminum.

 

Bókin er skrifuð af Kristjáni Má og Anne Kennedy en þau hafa bæði getið sér góðs við ráðgjöf til þeirra sem þurfa að ná útfyrir eigin landamæri hvort sem það er lands, menningu eða tungumáls. 

 

Bókin er gefin út af bandaríska forlaginu Que og er komin í forsölu á Amazon, Ebay, Walmart  og Barnes & Noble. Bókin heitir heitir Global Search Engine Marketing: Getting Better Search Engine Results Around the World.



Til baka