Með vaxandi notkun Internetsins hefur mikilvægi vefleitarvéla orðið æ ljósara. Þegar stjórnendur fyrirtækja upplifa að vaxandi hluti fyrirspurna, og jafnvel uppruni viðskiptatækifæra, á rætur sínar að rekja til Internetsins rennur yfirleitt upp sú staðreynd að fyrirtæki gætu gert mun betur á Netinu, enda yfirleitt um afar vannýtt tækifæri að ræða.
Þetta er samt ekki alveg svona einfalt og í raun er Kína grautur málsvæða og mismunandi útfærslna af Kínversku og ofan á þetta er Kína ekki bara meginlandið, heldur líka Hong Kong og Taiwan. Þessi þrjú megin svæði eru öll með mismunandi útgáfu sem að mestu er undir áhrifum mismunandi menningar.
Við getum fellt heilu skógana til að gefa út allskyns rit og bæklinga og flogið fram og aftur um allan heiminn til að rápa um risastór sýningarsvæði. Árangurinn af slíku starfi mun aldrei ná nema broti af því sem Netið getur fært okkur með réttu átaki. Um leið og við finnum vaxandi mátt internetsins og nýtum okkur krafta þess, náum við firnasterkri stöðu í alþjóðasamkeppni þar sem stærðin skiptir ekki máli, heldur þekkingin.