Án þess að ég ætli að fara neitt nánar út í það hér þá ber að hafa það í huga að leitarvélar eru mjög mismunandi og skila oftast mjög mismunandi leitarniðurstöðum.
Markaðssetning á vef
Til eru tvær megin aðferðir við markaðssetningu á Internetinu. Sú fyrri er PPC, sem útleggja má sem ?greiðsla fyrir smell? og síðan leitarvélavænar síður sem aðlagaðar eru af einhverju eða öllu leiti að leitarvélum. Köllum þessa aðferð Greidd her eftir
Síðan er það náttúruleg umferð, sem við skulum kalla náttúrulega hér eftir. Sú aðferð byggist upp á að vefurinn sé hannaður af einhverju eða öllu leiti með leitarvélar í huga og þau textaskrif, frumkóði, myndauppsetningar, vinna með margmiðlun og annað efni sé sem mest unnið til að þóknast leitarvélum Internetsins og gera þeim sem auðveldast fyrir að skrá vefinn, Indexa.
Aðlögun að náttúrulegri umferð leitarvéla
Í dag er það algengur misskilningur að þessi aðferð sé ódýr og auðveld. Sem dæmi ef þú vilt finnast undir ?hotels in Iceland? á Google þá koma yfir 3.000.000 niðurstöður og til að vera inni á topp tveim eða þrem niðurstöðusíðunum þarf að hafa fyrir hlutunum.
Samkvæmt ÖLLUM könnunum sem gerðar hafa verið er náttúruleg leitarvélaumferð að skila mun meira í ROI en greidd og það þar eru tvær megin ástæður fyrir því
1. Mun fleiri smella á náttúrulegar niðurstöður en greiddar. Svo að það kemur mun meiri umferð á vefinn þinn þannig fyrir minna.
2. Ein besta að ferðin í dag til að ná aukinni umferð leitarvéla og þá um leið auknu vægi á leitarvélum er að auka tenglavinsældir (Linkpopularity). Þessir tenglar gefa þér mun meiri umferð, auk þess sem tenglavinsældir gefa þér mun meira vægi til lengir tíma og þá um leið aukna umferð.
Helsti veikleiki þessarar aðferðar er sá tími sem fer í hana og sú aðferðafræði sem þarf að beita til að ná árangri. Til dæmis er ekki sama hvernig linka þú færð inn sumir gera jafnvel illt verra. Það getur tekið allt að þrem mánuðum að ná fyrsta skefi svo viðunandi sé og það er kannski tími sem er ekki á til á þeirri stundu. Kostirnir eru samt mun mikilvægari og það er viðvarandi árangur sem gefur mun hærri ROI á þá fjáfestingu sem leggja þarf í verkið.
PPC - greiðsla fyrir smell
Stærsti kosturinn við PPC er að sú aðferð gefur þér sjáanlegan árangur strax. Hafðu samt í huga að sjáanlegur árangur er ekki það sama og finnanlegur (ROI). Samt er PPC aðferðin besta leiðin til að ná árangri á meðan þú býður eftir að náttúruleg umferð skili sér á vefinn þinn. Kostnaður við þessa aðferð getur verið mjög breytilegur og þú getur reiknað með að þurfa að eyða einhverjum tíma, þó ekki viðlíka og við náttúrulegu aðferðina, við að snikka til þau orð og frasa sem skila árangri.
Sem skammtímalausn er PPC mun betri lausn en náttúruleg. En stærsti gallinn er viðvarandi kostnaður og þegar markaðsherferðinni er hætt er ekkert að sýna fyrir þá vinnu sem lögð hefur verið í verkefnið, allavega ekki sjáanlegt á leitarvélum Internetsins.
Að lokum
Gullna reglan hlýtur að vera sú að ROI sé hámörkuð. PPC er alveg þess virði, sérstaklega ef tíminn er naumur en yfir heildina og til lengri tíma er sú aðferð tæp og hefur ekki skilað fyrirtækjum endanlegum árangri, þ.e.a.s. fyrirtækið hverfur af listum um leið og greiðslu er hætt.
Ef fyrirtækið ætlar ekki að tjalda til einnar nætur hlýtur markmiðið að vera langtíma áhrif, svo aðlögun að leitarvélum (SEO) er betri kosturinn ef velja þarf á milli þessara tveggja aðferða.
Best er þó að finna bil beggja. Vera vakandi fyrir stöðunni á leitarvélum gagnvart þeim leitarfrösum sem finnast á eftir og aðlaga vefinn samkvæmt því að leitarvélum, auk þess að nýta PPC til að ná augum væntanlegra viðskiptavina með t.d. tilboð eða aðra hluti sem koma óvænt uppá.
Kristján Mar Hauksson
Internet Markaðsfræðingur
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar
Info [at] nordicemarketing.is
.