Við erum alltaf að leita að góðu fólki
Nordic eMarketing er fyrirtæki í örum vexti og við erum alltaf að leita að góðu fólki til að starfa fyrir okkur. Hjá Nordic emarketing starfar breiður hópur af skemmtilegu fólki í lifandi og spennandi vinnuumhverfi. Nordic eMarketing sérhæfir sig í internet ráðgjöf, allt frá því að aðstoða við val á hugbúnaði yfir í að markaðssetja fyrirtæki á Internetinu í fjöltyngdu umhverfi.
Fyrirtækið starfar í alþjóðlegu umhverfi með viðskiptavini í Svíþjóð, Ungverjalandi, Rússlandi, Bretlandi og Bandaríkjunum svo eitthvað sé nefnt.
Atvinna í boði - bæði í hluta og fullt starf:
Internet ráðgjöf
Til greina koma einstaklingar með menntun í tölvutækni, markaðsfræðum eða hönnun. Tungumálakunnátta er ákjósanleg.
Söluráðgjöf í vefgreiningu
Nordic eMarketing hefur í fórum sínum gríðarlega öflug vefgreiningartól sem yfir 50 fyrirtæki á íslandi og erlendis nota til að mæla árangur sinn á Internetinu.
Áhugasamir hafi samband við Kristján Má í síma 540 9500 eða sendið póst á info [at] nem.is