Internet Markaðssetning

Árangursrík markaðssetning á Internetinu

 

Til að ná árangri skiptir höfuðmáli að fyrirtæki hafi unnið góða undirbúningsvinnu og rannsakað hvaða leiðir á að fara til að ná árangri í markaðssetningu á Internetinu.

 

Til að ná langtíma árangri er mikilvægt að fagaðili í markaðssetningu á Internetinu komi að hönnun hans, veiti ráð við val á vefumsjónarkerfi, skoði bakenda þess og þann HTML-kóða sem kerfið eða forritari vefsins smíðar. Einnig þarf að skoða og meta þær síður sem vefurinn byggir á, jafnframt er mikilvægt að kanna hvaða upplýsingar síðurnar innihalda. Til dæmis getur lélegur HTML-kóði, þótt allt annað sé í lagi, drepið góð markaðstækifæri strax í fæðingu.

 

Í langflestum tilfellum hefst vefvæðing á því að hannað er útlit, efni sett inn á síður og í framhaldinu er hafist handa við að markaðssetja vefinn. Út frá leitarvélunum er þetta ferli í langflestum tilfellum rangt og leiðir til mistaka og lélegs árangurs. Þó að vissulega eigi ekki að hanna vefi einvörðungu með leitarvélar í huga verður öll hönnun að taka mið af þeim frá upphafi. Þar sem ljóst er að stærstur hluti umferðar inn á nær alla vefir á sér upptök á leitarvélum er afar mikilvægt að horft sé til allra hönnunarþátta strax í upphafi og að ferlið sé í réttri röð.

 

Grunnreglurnar eru eftirfarandi

  • EKKI hefja markaðssetningu á leitarvélum fyrr en vefurinn er tilbúinn
  • EKKI skrá í blindni inn á leitarvélar og í sumum tilfellum ekki skrá neitt. Láttu þær koma til þín
  • EKKI kaupa vefkerfi af því að það er ódýrast, keyptu það af því að það uppfyllir kröfur þínar og getur vaxið með þörfum þínum
  • EKKI láta hanna útltið nema að þú sért með á hreinu hvaða vefkerfi þú ætlar að velja og hvaða árangri vefurinn á að ná
  • Vertu með markmið þín á hreinu frá upphafi og fáðu faglega aðstoð
  • Veldu fagmenn með reynslu sem sannanlega hafa náð langvarandi árangri fyrir hönd sinna viðskiptavina
  • Skyndilausnir virka EKKI og árangur á Internetinu er skuldbinding til framtíðar, það eru ekki til neinar töfralausnir

Leiðir í boði
Ýmsar leiðir eru í boði með mismunandi áherslum sem allar eiga það sameiginlegt að skila sér vel inn á leitarvélun Internetsins, t.d. Google, MSN, Yahoo og ASK svo eitthvað sé nefnt.

 

Hafðu samband við sala (at) nordicemarketing.is til að fá frekari upplýsingar um hvað við getum gert fyrir þig til að þú náir árangri á Internetinu!