Internet Ráðgjöf

Lykilatriði hjá Nordic eMarketing eru:

  • Val og innleiðing veflausna
  • Árangursrík uppbygging heimasíðna
  • Að ná góðri stöðu á leitarvélunum 
  • Árangursríkar markaðsherferðir á Internetinu
  • Öflun gæðaheimsókna sem að lokum leiða til viðskipta

Ferlið sem við vinnum eftir skiptist í þrjá megin þætti sem eru:

  • Greining
  • Valmöguleikar
  • Innleiðing

Greiningar þátturinn leggur áherslu á að greina núverandi aðstæður.
það eru m.a.

Að greina samkeppnisaðstæður og markhópa ásamt því að ógnanir og tækifæri eru skilgreind
Tæknileg úttekt ásamt því að styrkleikar og veikleikar eru metnir
Finna leiðir til þess að ná forskoti á samkeppnisaðila
Skilgreina stefnu og setja markmið

 



Í valmöguleika þættinum eru farið yfir leiðir til að ná settum markmiðum og þar kemur reynsla og þekking starfsmanna Nordic eMarketing sér vel. Meðal annars er tekið á uppbyggingu síðunnar og hvernig er hægt að fá þann sem heimsækir síðuna til að eiga viðskipti.

Síðasti þátturinn er innleiðing en þar er tekið á hvernig á að koma áætlunum í framkvæmd. Lykilþátturinn í innleiðingarferlinu er verkefnastjórnun þar sem starfsmenn Nordic eMarketing sjá til þess að unnið sé eftir því ferli og aðferðarfræði sem lagt er upp með til að ná árangri í markaðssetningu á netinu.

Í ferlinu er meðal annars tekið á:

  • Aðstoð við stefnumótun, markaðsáætlanir og markaðsrannsóknir fyrir uppbyggingu vefja
  • Samkeppnisgreining á netinu
  • Lífsstíls- og Markhópagreining
  • Lykilorðagreining
  • Heildarúttekt á heimasíðum og greining á uppbyggingu vefja
  • Hvernig á að byggja upp ímynd fyrirtækja á Internetinu þannig að hún sé í samræmi við stefnu og markmið fyrirtækisins
  • Hvernig á að byggja upp árangursíka heimasíðu til að hámarka tækifæri og tekjur fyrirtækisins hvort sem um er að ræða nýja síðu eða endurhönnun
  • Markaðssetning lykilorða á leitarvélum (SEO)
  • Hvaða leiðir eru mögulegar við markaðssetningu á netinu og hvernig á að meta árangur
  • Hvernig á að byggja upp árangursríka markaðsherferð á netinu
  • Ráðgjöf um val vefkerfis (CMS)
  • Viðmótsprófanir
  • Heildar hönnun á heimasíðum, netborðum og fréttabréfum
  • Stjórnun innleiðingar á nýjum- og endurbóta á eldri vefjum
  • Reglulegar greiningar á vefnum og tillögur að endurbótum
  • Uppsetning og utanumhald vefja
  • Greining heimsókna
  • Birtingaráætlanir fyrir PPC, bannera herferðir og aðrar markaðsherferðir á netinu