Vefumsjónarkerfi - Við finnum kerfi sem hentar þínu fyrirtæki
Einfaldleiki í notkun og sjáanleiki á leitarvélum eru lykilatriði hjá Nordic eMarketing en hafa ber í huga að vefumsjónarkerfi þurfa að vera hönnuð út frá þörfum viðskiptavinarins en ekki síður út frá þörfum leitarvélana til að tryggja að vefsíðan finnist á helstu leitarvélunum. Nordic eMarketing leggur mikla áherslu á að vinna með viðskiptavininum til að tryggja hámarkssárangur og sem besta framsetningu heimasíðna.
Við bjóðum uppá Internet ráðgjöf með reynslumiklum ráðgjöfum sem náð hafa frábærum árangri með fyrirtækjum eins og Opin Kerfi (Dacoda), OgVodafone (Stefna Hugbúnaðarhús), Capacent (LiSA), Hótel Varmahlíð (Dacoda), Bláa lóninu (Dacoda), Fjárfestingasofu (OutCome) ásamt tugum annarra.
Nordic eMarketing býður upp á ráðgjöf við val og kaup á rétta vefumsjónarkerfinu, grunnþætti þess að fyrirtækið nái árangri á Internetinu.
Nordic eMarketing - helstu kostir góðs vefumsjónarkerfis, hvað þarf að hafa í huga.
- Vefumsjónarkerfið þarf að vera einfalt og henta vel fyrir innri og ytri kerfi fyrirtækja og stofnana.
- Vefumsjónarkerfið þarf að vera í stakk búið til að takast á við markaðssetningu á Netinu.
- Gott vefumsjónarkerfi þarf að vera notendavænt fyrir þann sem vinnur með það en jafnframt sveigjanlegt fyrir þá sem eru lengra komnir í vefsíðugerð.
- Að kerfið vaxi með fyrirtækinu.
- Reiknaður TCO. Ein besta leiðin til að skilja kostnað þess að reka vef er að reikna heildarkostnað eignar/reksturs, t.d. yfir næstu þrjú til fimm ár eftir kaup.
Dæmi: Ef kerfið kostar lítið sem ekkert í upphafi en er með hátt mánaðargjald versus síðan vefkerfi sem kostar mikið í upphafi og er með lágt mánaðargjald.
Hafðu samband í gegnum sala (at) nordicemarketing.is eða í síma 540 9500 og við hjálpum þér að finna vefumsjónarskerfi sem hentar þínu fyrirtæki.