Við höfum nær 10 ára reynslu af markaðssetningu á Internetinu og bjóðum þjónustu okkar til að kynna, markaðssetja og selja vörur og þjónustu út um allan heim. Allir viðskiptavinir fyrirtækisins eru markaðssettir eftir þeirra þörfum innan Internetsins. Við höfum skilað árangri til viðskiptavina okkar með vaxandi fyrirspurnum, viðskiptatengslum og sölu.
Á meðal viðskiptavina okkar eru:
Okkar árangur til þessa er 100% og við höfum aðeins frá ánægðum viðskiptavinum að segja!
Við höfum starfað fyrir nær öll stærstu fyrirtæki landsins og erum með stóran hóp ánægðra viðskiptavina erlendis, í löndum eins og Kanada, Bretlandi, Þýskalandi,Svíþjóð, Chile og Grænlandi svo eitthvað sé nefnt. Á Íslandi má nefna fyrirtæki og stofnanir eins og Útflutningsráð Íslands, Capacent (áður IMG), Íslensk Getspá, Bláa Lónið, NAS, Samtök Ferðaþjónustunnar, Icelandair Hotels, Iceland Express, Nordic Fisheries, Iceland Export Directory, Firma Consulting, Víkingaþorpið ásamt hundruðum annarra sem notið hafa góðrar þjónustu, en fyrst og fremst góðs árangurs.
1. Við erum sérhæft Internet Markaðsfyrirtæki og vinnum sem slíkt með yfir 300 fyrirtækjum á ársbasa
2. Við tökum að okkur heildstæða ráðgjöf allt frá vali á vefkerfi í að markaðssetja vefi á svæðum innan Kína
3. Við höfum verið að vinna mikið með fyrirtækjum í ferðageiranum, þjónustu, iðnaði og útflutningi
4. Við leggjum áherslu á að aðstoða viðskiptavini okkar við að byggja upp árangursríka heimasíðu
5. Tökum út vefi með leitarvélabestun og síðan markaðssetningu í huga
6. Höldum fyrirlestra og kennslu
Ekki hika við að hafa samband og heyra hvað við getum gert fyrir þig!